Leita í fréttum mbl.is

Keðjubréf.

Reglulega gengur yfir heimsbyggðina keðjubréfaæði.  Það hefur gert það í áratugi.  Hér áður með venjulegum pósti.  Ég man eftir einhverjum tilgangi með sumum hér í gamla daga, senda servíettur, tyggjóplötu eða eitthvað til efsta nafnsins á listanum og senda svo nýtt eins bréf til 5 vina, fjarlægja efsta nafnið af listanum og setja sitt neðst.  Svo átti maður auðvitað að drukkna í servíettum eða tyggjói eða einhverju.  Ég hef slitið óteljandi svona keðjur, einhverjum tókst mér að halda áfram, en minnist þess ekki að hafa fengið svo mikið sem tyggjóbréf.

Í dag gengur þetta með email.  Póstur með einhverjum krúttlegum myndum, upphrópun um að þú hafir lent í snjóboltakeðjunni og allir sem hafa tekið þátt í henni hafa orðið fyrir einhverju ótrúlegu happi og hinar og þessar dæmisögur um þá sem slitu keðjuna og hafa lent í hræðilegum slysum eða eitthvað.  Geðslegt?  Krúttlegt?  Bara gaman að þessu?

Dæmi:

Angel Tag I'll just take it as a hint if I don't get this back. How many
people actually have 8 true friends? Hardly anyone I know! But some of us
have all right friends and good friends!!! You have been tagged by the
Friendship Angel Which means you are a great friend!! You will have good luck
for Two Years if you send this to 8 people or more and if it is sent back to
you then you know that you are a true friend..... You must send it in 5
minutes or your good luck will be broken!!!

Þetta dæmi er frekar pent.  Ég persónulega þoli ekki svona bréf og slít allar keðjur (heimurinn hefur ekki enn farist samt).  Frá upphafi til enda er gefið í skyn að annað hvort sé fólk svo ömurlegt að það eigi ekki vini eða séu ekki vinir vina sinna. 

  • Er það merki um góða vináttu að senda vini sínum hótanir um ævarandi hörmungar eða bölvanir ef hann sendi ekki ómerkilegt bréf út um allan heim?
  • Er það merki um góða vináttu að stimpla "vin" þinn fyrirfram sem falskan vin ef hann heldur ekki keðjunni áfram?  Því það eru bara góðir vinir sem fá svona bréf og fá þau aftur til baka.
  • Á fólk yfirleit 8-15 góða vini?  Ég persónulega kæri mig ekki um mikið fleiri en þessar 3 allra bestu vinkonur sem ég á, aðrir eru bara venjulegir vinir eða kunningjar.
  • Hvað með ónettengdu vini þína eru þeir þá aldrei alvöru vinir?   Því þeir fá aldrei svona óbrigðul merki um stórkostlega vináttu.

Svo er ömurleikinn falinn í sætum englamyndum, krúttlegum kettlingum, fiðrildum, blómum og smábörnum.  Það hlýtur að gera þessi ljótu bréf falleg er það ekki?  Hér á árum áður man ég ekki eftir þessum hótunum og bölvunum.  Þau settu heldur engin kerfi á annan endann.  Það getur gerst í dag.  Póstþjónum út um allan heim er oft drekkt í svona bulli og þetta er oft leið til að gera óskunda í netumferð.  Umferð verður hæg, diskar fyllast af mikilvægum englamyndum og svona.  Tími er tekinn sem hægt væri að nota í eitthvað uppbyggilegra.  Til dæmis hringja í vin og segja honum hvað það sé gaman að heyra í honum.  Wink

KittyAngelAð lokum er hérna krúttlegur kettlingsengill, sem þýðir að þú hefur verið klukkaður af bloggenglinum og ef þú setur ekki ummæli hjá 45 bloggvinum fyrir kl. 15:00 á morgun muntu þjást af ritstíflu og bloggtregðu í 4 vikur og það mun snjóa fram í júní á næsta ári, bara hjá þér.

LoL  Í alvöru!  Sendu vinum þínum frekar góða kveðju og slepptu bölvununum og hótununum, hver sem þú ert og svarar alltaf öllum keðjubréfum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fríða Eyland

Þessi keðjubréf eru mjög furðulegt fyrirbæri ég kannast við þau.
Hótunarbréf " ef þú slítur keðjuna mun ólukkan elta þig" er í þeim öllum leynt eða ljóst. þegar ég var krakki svaraði ég þessum bréfum mér til mikillar gremju. Fór að slíta keðjurnar tólf ára en þá sá ég ljósið, lét ekki plata mig eftir það

Síðan liðu árin keðjusamskiptalaus allt þar til elsta dóttir mín var sjö átta ára. Þá komu háþróuð keðjubréf sokka, nammi og fleiri sem ég man ekki um hvað, refsingarnar við slit keðjunnar annars eðlis, það myndi komast upp um hana ef hún gerði það. Sokka og nammi fékk hún aldrei frekar en yngri dóttir mín sem einnig tók þátt nokkrum sinnum (ég gat ekki sannfært þær strax un hverlags þvæla væri að svara svona bréfum)  

Skrítið er það að, sonur minn hefur aldrei  fengið neitt í þessum anda, kannski að þetta sé eitthvað svona stelpu.

Fríða Eyland, 29.9.2007 kl. 11:01

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hahaha frábær færsla hjá þér. Ég er svo sammála þér. stundum fær maður tölvupóst með fallegum boðskap og myndum og svo er hann gjörsamlega skemmdur með svona hótunum neðst.

Jóna Á. Gísladóttir, 29.9.2007 kl. 20:06

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Frábær færsla.  Nenni yfirleitt ekki að senda áfram og hef aldrei verið ginkeypt fyrir hótunum (uppeldislegur galli).  Gerði það hins vegar um daginn þegar dóttir mín í London sendi mér eitt og ég átti að verða fyrir kraftaverki (svei mér þá) eftir átta mínútur.  Bíð ennþá.  Lalalala.

Njóttu dagsins mín kæra.

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.9.2007 kl. 12:48

4 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Alveg sammála líka. Ég þoli ekki keðjubréf og slít allar keðjur.....Ég man einmitt eftir að hafa fengið svona tyggjókeðjur þegar ég var lítil......komst aldrei lengra en að hugsa um að senda keðjunar áfram.....svo bara gleymdist þetta og keðjan slitnaði  hehe.....

Takk fyrir góða færslu

Sunna Dóra Möller, 2.10.2007 kl. 12:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

krossgata
krossgata
Sérleg áhugamanneskja um krossgátur, þá sérstaklega sunnudagsgátu mbl.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 10815

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband