Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Persónuskilríki

Ég man ekki hvaða vitleysu mig var að dreyma í nótt, en ég fór að hugsa um persónuskilríki yfir morgunkaffibolla 1.  Allt í einu fór ég að hugsa um að ég heyrði í útvarpi um daginn ósléttar farir einhverrar konu í einföldum bankaviðskiptum þar sem hún var krafin um persónuskilríki.  Einu skilríkin sem hún hafði var debetkortið, með mynd, gefið út af bankanum.  Bankinn tók það ekki gilt sem gild persónuskilríki. Woundering  Í þessum útvarpsþætti var talað við talsmann bankans eða fjármálastofnunar einhverrar og kom fram að gildra/viðurkenndra persónuskilríkja væri krafist við tiltekin viðskipti, eitthvað í tengslum við lög um peningaþvætti og að þessi gildu/viðurkenndu skilríki væru vegabréf eða ökuskírteini.

Ég fór því að velta fyrir mér að það er löngu hætt að úthluta manni nafnskírteinum eins og gert var í mínu ungdæmi og að það eru alls ekki allir sem hafa tekið bílpróf né farið til útlanda.  Því má ætla að einhver hluti þjóðarinnar eigi ekki gild persónuskilríki.  Hvað gerir það fólk í einföldum bankaviðskiptum eins og millifærslu milli tveggja hálftómra reikninga?  Þegar það til dæmis er augljóst að þó talsmenn banka fullyrði að debetkortið gefið út af þeim dugi til almennra viðskipta þá dugar það alls ekki til og fólk er krafið fínni pappíra.


Það er kannski...

... að bera í bakkafullan lækinn að skrifa eitthvað um þetta heita hundamál.  En ég ætla samt að gera það.  Mér finnst múgæsingin þvílík og það yfir tómum sögusögnum.  Lýsingar eru auðvitað hrikalegar og ómanneskjulegar á atburðum, en hvað er svo sem vitað í þessu máli?

Hundurinn hvarf 28. maí.  Atburðurinn ömurlegi á að hafa gerst helgina 15.-17. júní.  Samt er iðulega talað um að ungu mennirnir hafi rænt honum eða fundið hann.  Hvenær? Eiga þeir að hafa haft hundinn allan þennan tíma, tvær og hálfa viku?  Það síðasta sem ég hef úr fréttum er að hundurinn hefur ekki fundist enn og því í raun ekkert vitað um ástand hans.

Vitni gefur sig fram 10-12 dögum eftir að atburðurinn á að hafa átt sér stað.  Lætur maður ekki vita strax?  Mér finnst einhvern veginn trúlegra að ef fólk gefur sig ekki fram strax þá sleppi það því alfarið.  Einhvers staðar á bloggi las ég að Neyðarlínan eigi að hafa gert lítið úr málinu þegar hringt var og sagt að lögreglan hefði ekki tíma til að svara svona löguðu.  Man ekki eftir að hafa séð það neins staðar í fréttum.  En illt ef satt er.

Það er talað um að verknaðurinn hafi náðst á öryggismyndavél, en það er engin öryggismyndavél á staðnum þar sem þetta á að hafa átt sér stað.

Það grípur um sig múgæsing meðal fólks og farið er að ásækja ungan mann með allt að því álíka grimmdarlegum hætti og verknaðurinn sem hann er sakaður um, sem enginn veit þó hvort hann hefur komið nokkuð nálægt.  Hann fullyrðir þó að hann hafi ekki verið á Akureyri á þessum tíma.  Það er skiljanlegt í ljósi aðstæðna, en væri kjánalegt ef hann hefur verið þar þá.

Svo er haldan kertavaka til minningar um hund, sem enginn veit hvar er eða í hvaða ástandi.  Það er ekki einu sinni haldin kertavaka þegar börn deyja af slysförum eða öðrum ástæðum.  Ég man eftir kertavöku til minningar um fórnarlömb sprengjunnar á Hirosima og Nagasaki.

Ég vona að eigendur hundsins finni hann, helst á lífi og við góða heilsu, en alla vega fái að vita um afdrif hans.  En er ekki rétt að slaka á þar til öll kurl eru komin til grafar? 

16.07.2007  Nú eru flest kurl komin til grafar og hundurinn reyndist vera á lífi.  Mikið er ég fegin því.  Merkilegt hvað hann virðist vera styggur.


Að gautast.

Ætli það komi fyrir í lífi allra barna að búa sér til orð yfir hluti og/eða athafnir?  Ég man ekki eftir að börn vina minna eða ættingja hafi gert það.  Bæði mín börn gerðu það þó.  Dóttir mín notaði um tíma orðið "geitubattar" yfir badmintonspaða og talaði um að "geita" þegar við vorum að spila badminton.  Þá var hún 2-3 ára.  Hún fullyrti líka að vínber væru "hilbír". 

Sonur minn sem er töluvert yngri talaði um að "gemma" um það að bursta tennurnar.  Svo uxu þau úr grasi og heimatilbúnu orðin hurfu þegar þau fóru að ná vel upp fyrir grastoppana.  Nú er barnabarnið orðið þriggja ára og viti menn hann býr til orð þegar honum finnst hann vanta eitthvað í orðaforðann.

Í dag vorum við að leika að "tindátum" (þeir eru úr plasti í dag).  Þetta voru riddarar, á hestum, með sverð og lensur og voru skýr fyrirmæli frá guttanum að nú skyldi barist, sem í hans munni var að "gautast".  Amma reyndi að finna út hvað "gautast" þýddi og stakk upp á að þeir væru kannski að skylmast?  "Nei, gautast".  -"Eða berjast"?  - "Nei, við erum að gautast".  Ömmustrákur brosir fallega til ömmu.

-Nú jæja, eru þeir kannski að skjótast eitthvað?  Í því greiddi hann riddaranum hennar ömmu svakalegt högg, svo hann datt af baki og niður á gólf og svaraði því að bragði:  "Já, hann skjótist nið'rá gólf".  Amma mátti bjarga riddaranum sínum frá bráðri glötun á gólfinu og halda áfram að gautast, takk fyrir.

Gautast þýðir að berjast með riddurunum fínu og ekkert meira með það.  Það er samt greinilega ekkert annað orð sem nær nákvæmlega þessari merkingu, ekki berjast, skylmast, skjótast.  Þetta er bara algerlega sjálfstætt fínt orð.


Frændi minn....

Er þetta ekki fullmikið af tengingum við að Íslendingar séu miðpunktur alheimsins?  Þetta er bara hreint agaleg grein.  Það er eins og 9 ára barn hafi skrifað. 

"Það er sko frændi minn sem var þarna alveg bara akkúrat þegar þetta gerðist.  Eða hann Siggi sko, hann er giftur konu sem var einu sinni gift frænda mínum.  Hann alla vega keyrði framhjá Hull rétt áður en byrjaði a rigna.  Gvuð, hugsið ykkur ef hann hefði nú verið aðeins seinna á ferðinni og það hefði verið byrjað að rigna í Hull.  Hann hefði getað lent í flóði".

Er ekki hægt að segja fréttir án þess að Íslendingar hafi komið þar nærri?


mbl.is Þúsundir manna hafa flúið flóð í Bretlandi - Íslendingur segist aldrei hafa séð annað eins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sérstakar lausnir, af hverju?

Þetta er örugglega jafn hættulegt og öll önnur úrræði.  Þú ert líklega jafn dauður ef þú lendir á naglamottu á 200 km hraða eins og ef þú lendir á einhverjum bíl einhvers annars sem á sér einskis ills von, á sama hraða.  Skiptir það annars máli hvað lögreglan notar til að stöðva fólk á þessum hraða, hvort sem það er bíll eða hjól og viðkomandi ætlar greinilega ekki að stoppa? 

Mér virðist að það sé sama hvað lögreglan gerir það verður allt snarvitlaust yfir því að mega ekki nota sínar eigin heimatilbúnu umferðarreglur, sem snúast um að eiga forréttindi í umferðinni, stofna mínu lífi og annarra í hættu.  Nú ef við hin dirfumst að benda á að við séum ósátt við þessar heimatilbúnu sérreglur, t.d. svigið á hvítu línunni milli akreina til þess að komast fram úr umferðinni, hærri hámarkshraði en aðrir í landinu þurfa að búað við þá er það tillitsleysi og einelti.  Af hverju ættu að gilda sérreglur fyrir bifhjólamenn/-konur?

Sérstakt hraðaksturssvæði er örugglega bráðsniðugt og gaman að nota.  Af hverju byggja áhugamenn um slíkt þá ekki þannig svæði?  Af hverju ætti ríkið eða sveitarfélög að rétta þeim það upp í hendurnar?  Af því þeir hóta annars að halda áfram að nota sér umferðarreglur fyrir sig og terrorisera almenning í umferðinni, þar til þeir fá það? (eins og ofdekraðir frekir krakkar).  Hins vegar mun slíkt svæði, hver sem byggir það, ekki koma í veg fyrir að þessir nokkru svörtu sauðir (hvort sem um ræðir ökuníðinga á bílum eða bifhjólum) níðist á umferðarlögum og -reglum.

 Af hverju er annars bifhjólaklúbbur að mæla með þessari aðferð gegn öðrum bifhjólamönnum sem hafa framið glæp eða munu fremja glæp?

Einu sérlausnirnar sem ég sé að ökuníðingar er að þeir fái sér þroska til að geta verið í samfélagi með öðru fólki.  Það er líklega hættuminnsta lausnin.


mbl.is Varað við naglamottum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki einleikið...

Ég fletti í gegnum einhvern myndbandaauglýsingabækling eða -blað í gær, sem heitir því frumlega nafni Myndir eða eitthvað í þá veruna.  Þar rakst ég á setninguna "það er ekki einleikið að vera meðal fræga og fallega fólksins í...l"Woundering Á eftir fylgdi svo lýsing á hvað einhver stjarnan ætti það erfitt bara vegna fegurðar sinnar.

Af hverju í ósköpunum er fólk að nota orðatiltæki sem það veit ekki hvað þýðir?  Þetta er líklega sama kýrskýra fólkið og heldur að kýrskýr þýði að vera klár.  LoL


Stormur í vatnsglasi?

Það eru alltaf einhverjar dómsdagsspár í gangi.  Það er vegur þessarar aldar.  Fyrir stuttu síðan birtist þessi grein http://www.mbl.is/mm/frettir/togt/frett.html?nid=1269866 þar sem nú eru allir hættir við að hafa smá-ísöld á norðurhveli.  Ætli það sé þá svona 3 vikur í að þeir blása þessa tilteknu dómsdagsspá af líka?

 Málið er nokkuð einfalt, við eigum að reyna að gera sjálf eins og við þykjumst vera að kenna börnunum okkar, ganga vel um.  Það skiptir ekki máli hvar, heima, hjá öðrum, úti í náttúrunni.  Það er líka alveg morgunljóst að maðurinn er ekki að fara að flytja í torfkofa aftur, lýsa upp með lýsislömpum, hita vistarverur með búpeningi, skipta yfir í hestvagna.  Við verðum einfaldlega að lifa með þeim veruleika sem við höfum ákveðið að skapa okkur.


mbl.is Bráðnun íss hraðar áhrifum hlýnunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sófaborð hvað?

"Tölvan mun vera svipuð og sófaborð að lögun" Athyglisvert.  Er bara ein lögun á sófaborðum og ein stærð?  Kannski er ritari greinarinnar að vísa til eigin sófaborðs og hefði verið gaman að hann/hún hefði þá hent mynd af borðinu með.

Grin


mbl.is Microsoft kynnir nýja tegund tölva
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

D-sóðar eða R-sóðar

Ég man hvað óað var og æjað yfir ruslinu í borginni fyrir borgar- og sveitarstjórnarkosningarnar í fyrra.  R-listanum kennt um ruslið í borginni og annað yrði nú uppi á tengingnum þegar og ef D tæki við.  Allt hugsandi fólk vissi auðvitað að það myndi engu breyta hver yrði við stjórnvölinn og allt hugsandi fólk veit að það hefur ekkert með það að gera hver stjórnar hvort það er mikið rusl í borginni.  Þetta er okkur sjálfum að kenna, hinum almenna borgara.  Íslendingar eru sóðar og það er greinilega ofverkið þeirra að taka ruslið með sér og henda í næstu ruslafötu, þó hún sé 5 metrum frá því.  Þannig horfir maður á fólk henda frá sér rusli, nálægt ruslafötum og það þó það eigi  leið hjá þeim.  Þegar upp er staðið þá verður að breyta viðhorfi fólks almennt og hver og einn að taka sína ábyrgð í þessum málum.

Það vakti annars athygli mína að talað er um að "iðulega komi mikið af rusli undan snjónum".  Ég spyr hvaða snjó.  Það hefur ekki verið neitt sérlega snjóþungt undanfarin ár og fólk er ekkert sérstaklega sóðalegt þegar snjóar.  Það er bara minna hreinsað yfir veturinn og þess vegna safnast meira fyrir þann tíma og verður áberandi að vori.

Síðasta sumar virtist minna hreinsað í mínu hverfi en áður.  Unglingar í unglingavinnunni sem væntanlega vinna stóran hluta af hreinsunarstarfinu sáust varla í hverfinu.  Svo ég spyr er sett minna fé í hreinsun og unglingavinnuna eftir að D tók við völdum?  Ég fyrir mitt leyti vildi frekar sjá aðeins fleiri unglinga fá smá sumarvinnu og hreinsað yrði aðeins betur til í borginni en að meira glimmer sæist á Hinsegin dögum eða í Gay pride göngu.  Styrkur fyrir slík gæluverkefni finnst mér geti komið frá einkaaðilum og borgin sjái frekar um sameignina.


mbl.is Vaxandi sóðaskapur í borginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Xhvad er að baki?

Fólk hefur haft gaman af því undanfarið að nota xhvad.bifrost.is til að kanna hvar skoðanir þess liggja.  Ég hafði meira gaman af því að kanna hvað lá að baki spuringunum til að aðgreina fylgi við flokkana.

Valmöguleikinn "Engin skoðun" gefur 0 stig á alla flokkana, algjörlega rökrænt.  Valmöguleikar við einni spurningu geta gefið mínus stig, en þá bara á Vinstri græna.  Og svo merkilegt sem það nú er þá gefa valmöguleikarnir, "Ósammála" og "Mjög ósammála", við eina spurninguna, 0 stig á alla flokka.  Svo ef fólk er á móti því að gefa vínverslun frjálsa (en það er samt skoðun) og telur sig vera að raða stigum á fylgi við einhvern flokk með því að gefa það upp sem svar... þá nei, svo er ekki, það getur allt eins haft enga skoðun á því.

En ég setti þetta upp í töflu að gamni.

Stóriðja er íslensku samfélagi til framdráttarmjög samsammósammmjög ósam
sjálfstæðisfl.12,56,25  
framsóknarfl.2010  
vinstri grænir  6,2512,5
íslandshreyfingin  1020
Ísland á að hefja aðildarviðræður við Evrópusamb.mjög samsammósammmjög ósam
sjálfstæðisfl.   12,5
samfylking2512,5  
vinstri grænir  6,2512,5
Áframhaldandi samstarf við NATO er grundvöllur...mjög samsammósammmjög ósam
sjálfstæðisfl.12,56,25  
framsóknarfl.2010  
samfylking2512,5  
vinstri grænir  6,2512,5
frjálslyndi fl.105  
íslandshreyfingin2010  
Áframhaldandi einkavæðing ríkisfyrirtækja er ...mjög samsammósammmjög ósam
sjálfstæðisfl.12,56,25  
vinstri grænir  6,2512,5
frjálslyndi fl.105  
Grunnnám í ríkisreknum háskólum á að vera gja..mjög samsammósammmjög ósam
sjálfstæðisfl.  6,2512,5
framsóknarfl.2010  
samfylking2512,5  
vinstri grænir12,56,25  
frjálslyndi fl.105  
íslandshreyfingin2010  
Taka þarf upp annað fiskveiðistjórnarkerfi á Íslandimjög samsammósammmjög ósam
sjálfstæðisfl.  6,2512,5
vinstri grænir12,56,25  
frjálslyndi fl.105  
Einkavæðing er æskileg í heilbrigðisgeiranummjög samsammósammmjög ósam
sjálfstæðisfl.12,56,25  
samfylking2512,5  
vinstri grænir  6,2512,5
frjálslyndi fl.105  
íslandshreyfingin2010  
Aðskilnaður ríkis og kirkju yrði íslensku samféla...mjög samsammósammmjög ósam
framsóknarfl.  1020
frjálslyndi fl.105  
Gefa á verslun með léttvín og bjór frjálsamjög samsammósammmjög ósam
sjálfstæðisfl.12,56,25  
frjálslyndi fl.105  
Afnema á innflutningshöft á landbúnaðarvörummjög samsammósammmjög ósam
framsóknarfl.  1020
vinstri grænir  6,2512,5
frjálslyndi fl.105  
íslandshreyfingin2010  
Takmarka á verulega innflutning verkafólks til Ísl...mjög samsammósammmjög ósam
frjálslyndi fl.126-6-12


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

krossgata
krossgata
Sérleg áhugamanneskja um krossgátur, þá sérstaklega sunnudagsgátu mbl.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 10886

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband