Leita í fréttum mbl.is

Lífiđ.

OldCouple

  Ţau voru öll saman í stofunni.  Fullorđin hjón, dóttir ţeirra og barn hennar.  Venjulegur dagur međ kaffisopa ađ loknu dagsverki.  Mćđgurnar sátu í sitt hvorum stólnum og rćddu um landsins gagn og nauđsynjar af öryggi ţeirra sem allt vita.  Ţađ var ekkert nýtt.  Mađurinn stóđ í gćttinni og horfđi yfir sviđiđ međ undarlegt bros á vörum.

  Barnabarniđ lék sér til hliđar.  "Amma, kondu énna!" hrópađi hann og vildi fá ömmu til ađ leika.  Ömmu var mikiđ niđri fyrir og var ađ rćđa hástöfum eitthvađ óréttlćti heimsins eins og ađ uppáhalds kakan í Bónus hafđi hćkkađ tvöfalt á síđustu mánuđum og fólkiđ á annarri hćđinni sem var međ ţrjá bíla tók öll bílastćđin og óánćgjan streymdi úr hljómfalli raddarinnar.

"Bíddu ađeins kúturinn minn amma er ađ tala viđ afa", sagđi amma og snýr sér aftur ađ manni sínum og dóttur og heldur áfram ađ ţusa af miklum móđ um mikilvćgustu mál dagsins og er mikiđ niđri fyrir.  "Amma, konda leika", segir drengurinn litli hálf brostinni röddu vonsvikinn yfir ađ amma skuli ekki spretta á fćtur eins og allir vita ađ ömmur eiga ađ gera ţegar ömmukútar kalla.

Amma snýr sér ađ drengum, í miđri hávćrri setningu, snarlćkkar röddina og segir blíđlega:  "Bíddu ađeins kúturinn minn, amma er ađeins ađ tuđa í afa" og snýr sér aftur ađ hinum tveimur og heldur áfram réttlćtisrćđunni um ranglćtiđ af engu minni styrk en áđur.  Dóttirin hlćr.  "Amma ţarf ađ taka út tuđskammtinn sinn".

Mađurinn stendur í gćttinni og horfir yfir sviđiđ međ undarlegt bros á andlitinu.  "Ţetta er lífiđ", hugsar hann, "merkilegt ađ hafa ekki tekiđ eftir ţví fyrr".


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

krossgata
krossgata
Sérleg áhugamanneskja um krossgátur, þá sérstaklega sunnudagsgátu mbl.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband