3.6.2008 | 15:44
Lúkasinn ársgamall.
Það er við hæfi nú á ársafmæli Lúkassins að fólk missi sig í móðursýki yfir drápi á einhverju dýri. Lúkas II er í uppsiglingu... eða orðinn. Ég óska því öllum sem hafa misst sig yfir dauða ísbjarnarins til hamingju með afmælið og viðbrögð við hæfi á þessum tímamótum.
Persónulega þykir mér verst að grey dýrið hafi ekki náð, ært af hungri, að vaða til byggða inn á einhverja leikskólalóð og kjammsað á einhverju 5 ára barni. Það er hvort sem er svo mikið til af þeim. Hann hefði ekki haldist við lengi til fjalla, þar sem fjallaselirnir allir eru flognir til kaldari landa yfir sumarið. Það er samt alveg hugsanlegt að einhver fjallagarpurinn hefði lagt leið sína í veg fyrir ísbjörninn og orðið honum (ísbirninum) til lífsviðurværis eitthvað lengur. Svo að sjálfsögðu er það hræðilegt að hafa endað hugsanlega farsælar hörmungar dýrsins svona snögglega.
Annars er víst umdeilt hvort ísbirnir séu í svo mikilli útrýmingarhættu og hafa verið sögð "viðkvæm" tegund, sem fylgjast þarf með. Það er stutt síðan þeir voru settir á listann sem er aðeins meira en viðkvæm tegund og það eiginlega vegna hugsanlegrar fækkunar dýra vegna hnattrænnar hlýnunar. Í umfjöllun um skráningu ísbjarnarins á þennan lista er þó tekið fram að áður í sögunni hafi orðið hnattræn hlýnun og ekki orðið (augljóslega) tegundinni til útrýmingar og staðreyndin sé sú að allar bjarndýrategundir hafi sýnt sig hafa mikla aðlögunarhæfileika (þó ég fari ekki nákvæmlega í þá umfjöllun og dæmi).
Ísbjörninn felldur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tenglar
Staldrið
Reglulegir viðkomustaðir
- OKUR Okrið á Íslandi
- Leirbulla
- Einherji
- Silfrið
- Víkverjavofan
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Nýjasta vitleysan
Ég er...
Latte!
og samanstend af tvöföldum espresso og flóaðri mjólk.
Hvernig kaffi ert þú eiginlega?
Athugasemdir
Er virkilega komið eitt frá frá Lúkasarmálinu .... ja hérna hvað tíminn líður. Annars er ég sammála þér, á erfitt með að tapa mér í móðursýki yfir þessu og er eiginlega þakklátust að dýrið náði ekki inn til byggða með þeim afleiðingum sem það gæti hafa haft í för með sér!!
Kær kveðja til þín
Sunna Dóra Möller, 3.6.2008 kl. 16:33
Mér finnst nú mjög leiðinlegt að það þurfti að fella þetta fallega og mikla dýr.. en ef það hefði ekki verið gert, hver veit hvað hafði gerst?.. hugsanlega hefði björninn ekki gert neinum neitt.. en er maður tilbúinn að taka þá áhættu?
Dexxa (IP-tala skráð) 4.6.2008 kl. 10:00
Kjánleg færsla og líkindin með Lúkasarmálinu nákvæmlega engin.
Georg P Sveinbjörnsson, 4.6.2008 kl. 13:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.