Bloggfærslur mánaðarins, október 2007
4.10.2007 | 23:05
Upplýstir þjófar.
Mér er algerlega fyrirmunað að skilja hverju auglýsingar um að þjófnaður varði við lög og verði kærðir eiga að skila. Þetta vita allir. Líka fólk í öðrum löndum. Þjófnaðir eru alls staðar ólöglegir. Þess vegna til dæmis hafa þjófar tilhneigingu til að fremja glæpinn svo aðrir sjái ekki til. Viljum við að þjófarnir dáist að einstakri greind okkar þar sem þeir horfa á snyrtilega framsettar auglýsingar um augljósa hluti meðan þeir ræna og rupla? Og það á mörgum tungumálum! Flottir þessir Íslendingar vita þetta á mörgum tungumálum.
Þetta nálgast nú fáránlegar upplýsingar sem finna má með ýmsum hlutum til dæmis í Bandaríkjunum:
- Ekki má þurrka ketti í þessum örbylgjuofni.
- Kaffið í þessum bolla getur verið heitt og brennt þig sé því hellt niður.
- Ekki má strauja þessa flík meðan barnið er enn í henni.
Erum við á hraðferð að næstu tilnefningu til Darwins-verðlaunanna?
Hættum nú að láta eins og fífl, síum frekar ræflana í burtu og hleypum fólki ekki inn í landið nema það sé ekki á sakaskrá (neins staðar): "Við viljum ekki svona fólk hér". Pff pff pff. Við verðum líklega kát þegar við verðum spurð um sakavottorð næst þegar á að sóla sig á Costa Del Sol eða versla í Köben. Já, þetta virkar í báðar áttir sko.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Tenglar
Staldrið
Reglulegir viðkomustaðir
- OKUR Okrið á Íslandi
- Leirbulla
- Einherji
- Silfrið
- Víkverjavofan
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Nýjasta vitleysan
Ég er...
Latte!
og samanstend af tvöföldum espresso og flóaðri mjólk.
Hvernig kaffi ert þú eiginlega?