21.1.2008 | 18:53
Hringlandaháttur.
Óttalegur hringlandaháttur er þetta með borgina. Hvaða stjórn verður svo á morgun eða hinn? Nú ef svo Ólafur leggst veikur aftur - Margrét kemur aftur inn. Þá verður REI-listinn aftur inn, því ekki styður Margrét Vilhjálm og félaga og ekki Frjálslynda var það? Svo hressist Ólafur aftur og aftur fara þeir Villi í eina sæng (þó Ólafur hafi fyrir ekki svo löngu síðan haft ófögur orð um hnífsstungur í bakið og annað óskemmtilegt frá sjálfstæðismönnum til handa honum).
Þetta er ein hringavitleysa. Og á svo maðurinn að verða borgarstjóri - "með allt þetta atkvæðamagn að baki"? Það held ég að stólagræðgi, höfðingjasleikjuháttur og önnur sveitamennska Íslendinga eigi eftir að gera okkur að athlægi heimsbyggðarinnar núna. Tekur einhver mark lengur á þessu fólki?
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:56 | Facebook
Tenglar
Staldrið
Reglulegir viðkomustaðir
- OKUR Okrið á Íslandi
- Leirbulla
- Einherji
- Silfrið
- Víkverjavofan
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Nýjasta vitleysan
Ég er...
Latte!
og samanstend af tvöföldum espresso og flóaðri mjólk.
Hvernig kaffi ert þú eiginlega?
Athugasemdir
Uss ég hef ekki tekið mark á allri stjórn landsins lengi vel..
Dexxa (IP-tala skráð) 23.1.2008 kl. 17:54
Fríða Eyland, 24.1.2008 kl. 01:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.