Leita í fréttum mbl.is

Aldrei féll henni verk úr hendi.

Stundum velti ég fyrir mér hvað muni verða skrifað um mann að manni gengnum (ef þá eitthvað).  Það var stundum sagt um myndarlegar húsmæður í gamla daga þegar þær voru horfnar á vit feðranna:  "Aldrei féll henni verk úr hendi".  Ég á ekki von á að það verði sagt um mig.  Manneskju sem tekur sér náttfatadag tvisvar sinnum í mánuði og dekrar við sína sérvisku á einn eða annan hátt.

Ég vil samt benda á að núna akkúrat er ég að sjóða rabarbarasultu og er alveg hrikalega húsleg og allt.  Í gær týndi ég ber og ef ég verð ekki búin að gúffa þeim öllum í mig á morgun eða hinn er hugsanlegt að ég geri líka sultu úr þeim.  Ekki nóg með það heldur snaraði ég fram rabarbara-rauðlauksmauki fyrir tengdó áðan og hún fór sæl heim með þessa tilraun (hennar hugmynd reyndar - útfærð af mér Cool ).

Svo ef fólk minnist haustdaga þegar það minnist mín getur það alveg skrifað í eftirmælin:  Aldrei féll henni verk úr hendi.  Grin  En nú ætla ég að koma sultunni í krukkur og fá mér brauð með smjöri og volgri sultu.  Happy


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: krossgata

Bestu þakkir Anna.  Ég fann þetta á endanum... en fór alveg yfir Kjöl og aftur til baka, síðan fjallabaksleið áður en ég fann þetta og þá andaði ég léttar yfir kaffibolla og sá þennan fullkomlega einfalda vegvísi frá þér.

krossgata, 14.8.2007 kl. 15:47

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Krossgata villtu gjöra svo vel að koma með rauðlauksjukkið, þe uppskriftina.  Vantar sollis alveg gjörsamlega.

Smjúts

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.8.2007 kl. 17:25

3 Smámynd: krossgata

Í sviga fyrir aftan magnið sem ég notaði í tilraunina.  Heppnaðist stórvel, smellpassar með kjöti og dóttlunni finnst þetta geggjað með osti. 

  • 1 hluti rabarbari  (360 gr) bitaður - meðalstórir bitar
  • 1 hluti rauðlaukur (3 laukar - vógu 330 gr (saman)) frekar gróft skorinn
  • 1 hluti sykur  (330 gr)
  • soðið við jafnan hita í svona klukkutíma eða þar til þykktin er eftir þínum smekk.  Ef þú vilt eitthvað ónáttúrlega rauðan eða bleikan lit á þetta verðurðu að nota matarlit.  (Ég hef þetta svona frekar þunnt (miðað við sultu) og nota ekki matarlit).

krossgata, 17.8.2007 kl. 00:57

4 Smámynd: Sigurjón

Muna svo að skrúbba tennurnar eftir að hafa étið svona lagað.  Sultan er góð, en ógurlega sæt...

Sigurjón, 17.8.2007 kl. 01:18

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Algjör sykursprengja en allt í lagi að fá sér smá einu sinni í mánuði.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.8.2007 kl. 01:24

6 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

þessi setning; ja, henni féll (fellur) nú aldrei verk úr hendi, hefur reyndar alltaf farið svolítið í taugarnar á mér. Kannski vegna þess að ég er andstæða þessarar verkviljugu konu. En það er eins og það séu alveg ótrúlegir mannkostir að vera haldin tuskuæði eða að vera gjörsamlega ofvirk húsmóðir.

Jóna Á. Gísladóttir, 18.8.2007 kl. 00:06

7 Smámynd: krossgata

Skil þig Jóna.  Það má nú kannski minna fólk á að húsverk eru ekki einu verkin.  Það eru líka verk að semja og skrifa, rækta samskipti við fjölsyldu og vini, ráða krossgátur....... ja það er kannski aðeins of langt seilst en samt. 

krossgata, 18.8.2007 kl. 00:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

krossgata
krossgata
Sérleg áhugamanneskja um krossgátur, þá sérstaklega sunnudagsgátu mbl.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband